Andlit Afríku - söluandvirði rennur óskipt til skáta
Gefðu stórkostlega jólagjöf og styrktu skátastarf um leið!
"Nú liggur leið Hringfarans, Kristjáns Gíslasonar til Afríku. Þar segir m.a. af byltingum og eymd, frumbyggjum, górillum og óbærilegum hita en líka brosandi, ógleymanlegum andlitum Afríku. Fallegar ljósmyndir fylgja frásögninni og QR-kóðar fyrir mögnuð myndbrot. Frískandi og lifandi ferðasaga. Öll innkoma rennur óskipt til skáta."
Gefðu stórkostlega gjöf og styrktu skátastarf um leið!
"QR kóðar eru nýlunda í íslenskum bókum en með því að skanna kóðann með GSM síma (bera myndavélina yfir kóðann) þá opnast stutt myndband sem fjallar um það viðfangsefni sem er til umfjöllunar. Í bókinni Andlit Afríku eru 35 slíkir kóðar. Þetta bætir miklu við frásögnina - upplifun og skilningur lesandans verður miklu meiri fyrir vikið."
Söluandvirði hverrar bókar sem selst í Skátabúðinni rennur óskipt til skátastarfs!